Skip to content

Getting Started …

Getting Started

Velkomin/n! Og takk fyrir að treysta okkur til þess að vinna fyrir þig 🚀

Á þessari síðu finnur þú hagnýtar upplýsingar sem gott er að kynna sér þegar þú byrjar samstarfið með Górillu.

Efnisyfirlit:

  • Þjónusta – Afgreiðslutími, KPIs, hverju mátt þú búast við?
  • Samskipti milli þín og vöruhússins – hvernig er best að hafa samband?
  • Hvernig virkar API tengingin milli netverslunar og vöruhússins?
  • Um Extensiv, vöruhúsakerfið okkar
  • Mikilvægar stillingar í netverslun sem þú þarft að passa
  • Upplýsingar um heimsendingar og dreifingu

Þjónusta

Við hverju máttu búast frá okkur?

  • Afgreiðsla netverslun: Allar pantanir sem berast fyrir kl.13 eru afgreiddar og sendar út samdægurs. 
  • Afgreiðsla B2B: Heildsölupantanir eru afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag. Fer eftir stærð pantana og tíma dags sem þær koma inn. Stærri pantanir geta tekið lengri tíma í afgreiðslu.
  • Vörumóttaka: Það tekur 1-2 virka daga eða allt að 16 vinnustundir að afgreiða vörusendingar inn í vöruhús og uppfæra birgðastöðu. Skilyrði er að vörumóttökulisti sé sendur á pantanir@gorillavoruhus.is svo upplýsingar liggi fyrir um sendinguna.
  • Customer Service: Við reynum okkar besta til þess að svara öllum fyrirspurnum samdægurs.
  • Afhendingartími á pöntunum: Eftir að pantanir eru afgreiddar í vöruhúsinu eru þær sendar til viðskiptavini. Afhendingartími á höfuðborgarsvæði og suðvesturhorni (85% íslendinga) er samdægurs en nær allar pantanir á landsbyggðinni eru afhentar næsta virka dag.

Samskipti milli þín & vöruhússins

Við hvetjum þig til þess að hafa samband við okkur í tölvupósti. Við svörum fyrirspurnum hratt og örugglega. Við erum ekki að vakta símann allan daginn 😊

Vinsamlegast sendið allar fyrirspurnir tengdar daglegum rekstri svo sem pöntunum, vörum, sendingum og slíku á “pantanir@gorillavoruhus.is”.
Þá berst erindi þitt á allt teymið og þú færð svar við fyrsta tækifæri. Önnur netföng:

Gott að hafa í huga fyrir samskipti í tölvupósti

Til þess að við getum leyst vandamál fyrir þig hratt og örugglega – og án þess að eiga marga tölvupósta fram og til baka, endilega gefið vöruhúsinu eins ítarlegar upplýsingar og mögulegt er í fyrstu skilaboðum.

Taktu til dæmis alltaf fram pöntunarnúmer og SKU númer á þeim vörum sem um ræðir. Gefðu meiri upplýsingar frekar en minni, þá getum við svarað þér strax – það sparar tíma fyrir þig, vöruhúsið og viðskiptavininn.

Hvernig virkar tengingin milli netverslunar og Górillu?

Ef þú ert með netverslun þá erum við líklega búin að tengja saman vöruhúsið og verslunina þína með “API tengingu”.

“API integration refers to the process of connecting two or more applications or systems by using APIs (Application Programming Interfaces) to exchange data and perform actions. APIs are sets of protocols and standards that allow different software applications to communicate with each other”.

Grunneining er SKU númer

API tengingin milli netverslunar og Górillu Vöruhúss sendir birgðastöðu á vörum og pantanir milli kerfa. Grunneingin í þessu samhengi er SKU (SKU = vörunúmer) og hver vara þarf því að hafa vörunúmer. SKU þarf að vera nákvæmlega eins skráð í netverslun og í vöruhúsakerfinu.

Ef SKU númer er ekki 100% rétt milli kerfa eða SKU vantar í netverslun þá mun birgðastaða og pantanir með því vörunúmeri ekki syncast og pöntun verður ekki afgreidd. Það er því mjög mikilvægt að hver vara sé skráð með SKU númer í netverslun.

Hvað gerir API tengingin okkar?

  • Sækir pantanir í netverslun og syncar yfir í vöruhúsið
  • Sendir uppfærða stöðu í netverslun þegar pöntun hefur verið afgreidd
  • Sækir rétta birgðastöðu 24/7 frá vöruhúsinu og birtir í netverslun. Birgðastaða stjórnast úr vöruhúsinu.

Hvað gerir API tengingin ekki?

  • Tengingin uppfærir ekki pantanir ef breytingar eru gerðar
      • API tengingin sækir pantanir aðeins einu sinni og það er um leið og pöntun er gerð.
      • Breytingar sem eru gerðar í netverslun eftir að pöntun kemur inn skila sér ekki inn í vöruhúsið.
      • Ef þú þarft að gera breytingar, sendu okkur skilaboð á pantanir@gorillavoruhus.is ❤️
  • Tengingin sækir ekki pantanir sem eru merktar afgreiddar, ógreiddar eða á bið.
    • Við sækjum aðeins pantanir sem eru merktar sem greiddar og óafgreiddar. Það er default stilling í bæði Shopify og WooCommerce.
    • Við mælum ekki með því að bjóða upp á millifærslur sem greiðslumáta.
  • Tengingin stofnar ekki nýjar vörur
    • Ef þú stofnar nýjar vörur í netverslun þá þarftu líka að senda vöruhúsinu stofn-upplýsingar um vörurnar svo hægt sé að stofna þær í vöruhúsinu.

Vöruhúsakerfið okkar

Nánari um vöruhúsakerfið okkar (Extensiv) er að finna hér.

Mikilvægt: vöruhúsakerfið okkar virkar aðeins í tölvu og í Chrome vafranum. Ef þú lendir í einhverjum vandræðum, byrjaðu á því að athuga hvort þú sért í tölvu en ekki í síma og hvaða vafra þú ert að nota.

Górilla Vöruhús notar Extensiv sem er miðlægt vöruhúsakerfi. Við notum þetta kerfi til þess að vinna fyrir þig alla daga. Þú færð líka aðgang að þínum eigin bakenda í þessu kerfi þar sem þú getur meðal annars:

Mikilvægar stillingar í netverslun

Það er mikilvægt að allar stillingar í netverslun séu réttar svo réttar upplýsingar berist í vöruhúsið. Ert þú með allt þitt á hreinu? Hér eru nokkur atriði til þess að passa:

  • Viðskiptavinir verða að fylla inn bæði síma og netfang við pöntun (stillt undir “Settings -> Checkout” í Shopify.
  • Er SKU númer á hverri vöru?
  • Eru sendingarmöguleikar að birtast rétt þegar þú prófar að setja vörur í körfuna? Og eru verð eins og þú vilt hafa þau á sendingarleiðum?

Heimsendingar og dreifing

Í Górillu Vöruhúsi hefur þú aðgang að bestu sendingarmöguleikum landsins, við sjáum um að koma pöntunum til dreifingaraðila og við tryggjum þér betri kjör.

Hér að neðan er upptalning á þeim sendingarmöguleikum sem í boði eru en verð eru að finna í gjaldskrá vöruhússins.

  1. Afhendingarstaðir Dropp eru 100+ og um allt land. Listi með öllum afhendingarstöðum hér. Þetta eru ódýrustu sendingarleiðir landsins, þægileg afhending í alfaraleið, hægt að sækja nánast 24/7 og pakkinn bíður eftir viðtakanda í tvær vikur. Það besta sem er í boði á Íslandi enda eru um 90% pantana sem vöruhúsið afgreiðir sendar út með þessu móti.
  2. Heimsending samdægurs á bæði höfuðborgarsvæði og suðvesturhorni Íslands. Nær til 85% landsmanna yfir 16 ára.
  3. Sendingar á afhendingarstað Samskipa um land allt: Tilvalið fyrir stærri pakka og sendingar á landsbyggð þar sem Dropp er ekki með afhendingarstað.
  4. Górilla Dagdreifing: Dagdreifing til fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu. Markmiðið er að keyra verðmætar B2B sendingar eins hratt og kostur er og á lægri kjörum en við höfum heyrt af annarsstaðar.
  5. Heimsending og póstbox með Íslandspósti. Hentar sérstaklega vel á landsbyggðinni.

Um 90% viðskiptavina í netverslun velja að nota afhendingarstaði Dropp. Nær allar pantanir í verslanir, fyrirtæki, veitingastaði, apótek og slíkt fara með Górillu Dagdreifingu.

Jæja, takk fyrir að lesa.

Vonandi svarar þessi langloka mörgum spurningum um samstarfið okkar.

Er eitthvað sem vantar hér inni? Ef þú hefur einhverjar spurningar, ekki hika við að senda okkur skilaboð á pantanir@gorillavoruhus.is og við svörum þér um hæl! 😊